Velkomin á síðuna okkar.
Við heitum Marie Natasha,
Andrei og Daniel



21.10.2209 ný vefdagbókarfærsla. . 26.12.09 nýjar myndir nedst í nóv albúmi + nýtt des albúm
26.12.09 nye billeder





Ég heiti Marie Natasha Joensen og á heima í Thisted með mömmu minni.
Ég fæddist á sjúkrahúsinu í Thisted þann 14.mars kl 00:27.
Ég var 51 cm og 3.190 gr og alveg fullkomin.
Mamma mín heitir Jóna Ingibjörg Gylfadóttir og pabbi minn Klaus Dam Nielsen.

Ég á 5 systkini og þau heita
Alexander Freyr sem er nýorðinn 19 ára.
Tanja Líf, sem er 15 ára.
Svo eignaðist ég pínulitla tvíburabrædur, þá Andrei og Daniel sem eru bara 1 árs.
Og svo er það Sallie, sem er dóttir hans pabba og hún er 9 ára.



Om mig :
Jeg hedder Marie Natasha Joensen og jeg bor i Thisted sammen med min mor.
Jeg er født i Thisted sygehus den 14. martz kl 00:27.
Jeg vejede 3.190 gr og var 51 cm lang og jeg er helt perfect.
Min mor hedder Jóna Ingibjörg Gylfadóttir og min far hedder Klaus Dam Nielsen.
Jeg har 5 søstkender og de hedder
Alexander Freyr der er 19 ar.
Tanja Líf der er 15 ar.
Bittesmå tvillinge brødre som er 1 år.
Sallie som er 9 år og hun er min far´datter.






Fiskarnir
19. febrúar - 20. mars
Marie Natasha

Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt
og vel gefið, en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það
missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af
engri sjáanlegri ástæðu.

Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra.

Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast
að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum.

Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin
heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði
heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin.
Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr
skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja
skoðun sína hreint út.

Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum
hæfileikum barnsins ef þeir koma fram.

Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en
jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa
nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður
í fyrstu gagnvart ókunnugum.



Krabbinn
22. júní - 22. júlí
Andrei og Daniel

Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm
og foreldrar mega búast við að mörg tár muni
falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju
og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau
gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera
í föstum skorðum og umhverfið gott.

Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki
að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt
mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll.

Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því
er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar.
Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist
í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun.

Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi,
ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel.

Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið
upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er.
Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki
sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur
margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn
á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu
bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla
krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar.

Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf,
veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar
sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.





Þú ert gestur nr. 4521